Flora Yukhnovic - Bacchanalia

Ég rakst fyrst á verk Yukhnovich í Hirshorn safninu í Washington. Frámunalega fallegt verk sem ég komst svo að að heitir Lipstick, Lip Gloss, Hickeys too (2022).  Verkið er stórt og flæðandi í lokkandi og fallegum pastellitum. Það er kvenlegt og kokhraust. Titillinn undirstrikar kvenlegan veruleika en stærðin og hávær fegurðin lætur Engan bilbug á sér finna. Málaðar varir og sogblettir sem ekki þarf að fela. Þetta er léttúðugt og decadent rókókó án þess að vera fullt af púðri og fáránlegum kríólínum. Nútíma rókókó sem hefur sig yfir yfirlæti listarinnar og tranar sér fram án þess að biðjast afsökunar.

Lipstick, Lip Gloss, Hickeys too (2022)

 Hin breska Flora Yukhnovich er fædd árið 1990. Hún er heilluð af hugmyndinni um smekk og smekkleysi og hvernig hið mjúka og bleiku litirnir eru taldir kvenlegir og yfirborðskenndir. Og hún snýr þessu upp í stórkorna fegurð sem er ekki annað hægt en að taka alvarlega. Ég varð mér því út um bók með verkum hennar sem Hauser & Wirth gaf út í tilefni sýninar á verkum hennar í Los Angeles árin 2025 til 2026 og hafði yfirskirftina Bacchanalia. Verkin voru mörg hver máluð í Los Angeles og tala inn í Bandarískan veruleika Donalds Trumps og tæknigarkanna í Sílíkondal. Yukhnovic notar annað myndefni sem innblástur fyrir verk sín og í Los Angeles setti hún upp myndir frá Hollywood og Disney. Auglýsingar og uppstillingar af ofgnótt.

Mér finnst bókin ekki gera verkunum alveg nógu góð skil. Það eru margar blaðsíður af málningunni sjálfri en ég hefði viljað sjá vekrin í heild stærri. Það væri vissulega gaman að geta séð málninguna og standa við vekrin til að sjá hluta þeirra en það gengur ekki alveg upp í svona bók. Það er líka erfitt að gera svona stórum og litmiklum verkum skil á tölvuskjá. Hér er hægt að skoða þau betur og hér er hægt að sjá hvernig var að vera á staðnum.

Innblástur Yukhnovic

 

Bacchanalia voru óopinber einkapartý sem haldin voru til heiðurs rómverska guðsins Bacchus sem á sér samsvörun í hinum gríska Díónýsusi. Bæði Poussin og Rubens hafa málað svallveislur af þessu tagi en verk Yukhovich hafa meiri og öðruvísi áhirf. Verkin eru nánast alveg abstrakt og því vekja þau frekar upp tilfinningu en að koma skilaboðum til skila. Myndefnið er ekki skýrt fyrir augum heldur er eins og það fljóti um. Það er allt á hreyfingu eins og þegar við skrollum yfir skjá og tilfinningin er um eitthvað óljóst og óáþreyfanlegt. Bacchanalia var útmálað sem ógn við Rómaveldi vegan sukksins og óhemjunnar sem fór þar fram. Yukhvovic vísar í ameríska menningu til að ná fram tilfinningu fyrir svipuðum aðstæðum í dag. Bleiku Disney fílarnir tákna sukkið þar sem þeir koma úr teiknimyndinni Dumbo þar sem fílarnir fljúga eftir að hafa komist yfir kampavín Seeing Pink Elephants (2025). The Last Days Of Disco (2025) og Fever Pitch (2025) eru titlar á bíómyndum þar sem útrás fyrir allsnægtir er könnuð í Hollywood. Myndirnar eru eins og fyrr sagði nánast alveg abstrakt og marglaga þannig að eiginlegar vísanir mást út en eftir situr tilfinningin um yfirdrifna hreyfingu, stjórnleysi og kæruleysi.

Bacchanalia (2023)

 Það sem heillar mig sérstaklega er myndbyggingin. Ég myndi lísa þessari mynd sem abstrakt landlagsmynd því það er greinilegt landslag þar sem sjá má gróður og dagsbirtu. En það eru ansi órennilegir líkamar sem fljóta saman Díonýsusi til heiðurs. Þeir eru bleikir og við sjáum móta fyrir fót hér og hönd þar. Lendar og læri hnoðast saman svo minnir á orgíu. Ég finn ekki Bakkus.

Luncheon (2025)

Það er ekki bara dans og dufl heldur líka ofgnótt. Superabundance eða ofurgnægð er það sem Bandaríkin standa svo sterkt fyrir og hafa jafnan verið stolt af. Kræsingar sem sóttar eru úr gömlum myndum þar sem ávextir táknuðu lúxuslifnað og forgengileika. Það er eins og munúðarfullu aldinin sem hanga að því er virðist í lausu lofti í Trifle (2005) séu að við það að hrynja úr þessari glæsilegu uppstillingu.  Luncheon (2025) vísar með titilinum í kurteisislegan hádegisverð en Yukhnovic vísar til þess þegar Lawrence Alma-Tadema málaði mynd af rómverska keisaranum Elagabalus sem sagður var hafa bókstaflega drekkt gestum sínum í rósabaði lét hann senda til sín þúsundir rósa til að mála myndina sem varð í sjálfu sér að fáránlega decadent gjörningi. Í auglýsingu fyrir ilmvatnið Flora frá tískuhúsinu Gucci má sjá rósabeð sem Flora Yukhnovic sér samsömun með í rósaofgnóttinni og þá má ímynda sér stæka lyktina yfirbnæfa allt velsæmi.

Trifle (2025)

Party In The U.S.A (2025)

 Það er Partý í U.S.A. Óopinbert einkapartý sem hugsanlega á eitthvað skilt með Bacchanalia en hið opinbera virðist vera í eins miklu svalli og ekki erfitt að ímynda sér allt klabbið að hruni komið. Undir lögum af málningu má sjá kyndilkonuna sem prýðir merki Columbia Pictures kvikmyndaframleiðsluna í Los Angeles. Hún er eiginlega horfin en skýin bak við hana standa. Það er óljóst hvort þetta séu eftirmálar sprengju. Vinstra megin má enn sjá súlur sem héldu uppi Bandarísku samfélagi. Annars virðist vera eitthvað óskiljanlegt kraðak í gangi þarna. Svona eins og skrollast endalaust yfir skjáinn.

Next
Next

Miranda July - All Fours