Það voru nokkrir skálar á Feneyjatvíæringnum 2024 sem greiptust betur í minni mér en aðrir. Auk Þýska, Feneyska, Gríska, Sádi Arabíska og Ítalska skálans situr sá Breski í mér og mig langar að gefa honum smá rými. Það er ýmislegt að finna á netinu og ég fletti upp á youtube til að hressa upp á minninguna. Hér má sjá Akomfrah og sýningarstjórann, Tarini Malik ganga um skálann. Því miður er tónlist yfir hljóðunum sem er svolítið bagalegt þar sem hlustunin skiptir miklu máli fyrir verkið. John Akomfrah var fæddur í Ghana árið 1957 en fluttist 8 ára til Bretlands með foreldrum sínum. Hans aðal miðill er videólistaverk en hann hefur einnig gert kvikmyndir. Verkið hefst á skjá fyrir utan skálann á skjá og nær svo yfir 7 herbergi með skjáinnsetningum. Djúpir litir og hljóðmynd sem minnir á undirveröld. Kannski undirmeðvitund eða undirdjúpin. Yfir allt flæðir vatn. Vatn sem Akomfrah segir vera uppsprettu lífsins en líka ógn við það með öllum sínum þunga og mætti. Og mannfólkið hefur verið að hreyfa við lögmálum þess með óséðum afleiðingum.
Hér og hér má sjá hvernig það var að vera á staðnum. Ég fann fyrir svo miklum fögnuði að vera þarna með öllu þessu fólki. Fólk allsstaðar sem gaf sér mismikinn tíma til að sitja og taka allt inn. Ég beið eftir lausu sæti og hvíldi fæturna á meðan ég reyndi að koma öllum þessum brotum saman í einhverja sýn í hausnum á mér. Brotakend fortíð alsett táknum sem ég næ ekki að setja í samhengi. Það sem ég sá hafði drukknað í fortíðinni og merkingin var líka undir fargi. Saga, náttúra og glappaskot mennskunnar. Ég heyrði Billie Holiday syngja í gegn.
I´m like a little boat
Sensing an expanse
Of endless water
Here under growes of trees
Face to face in the bedroom
Listening all night to the rain
Ljóðið er eftir kínverska skáldið Su Dongpo (1037-1101) og var innblástur verksins. Á öðrum stað er líka vísað til bandaríska blaðamannsins Rachel Carson (1907-1964) sem skrifaði þrjár mjög áhrifamiklar greinar í The New Yorker árið 1962. Greinarnar Silent Spring voru síðar gefnar út á bók og fjölluðu um gríðarlega eyðileggingu eiturefna á náttúrunni og hvernig upplýsingar um hana voru hundsaðar og beinlínis beittar þöggun af stórfyrirtækjum. Árið 1962 var komið í ljós hvernig sannleikur og hörmungar láta í lægra haldi fyrir dollurum í Bandaríkjunum. Það er ekkert nýtt að hagsmunir almennings séu traðkaðir niður til að liðka fyrir gróða einkafyrirtækja. Það versta er að á einhvern sturlaðan hátt er gróðablætið ekki bara umborið heldur er það viðtekið að svoleiðis gangi efnahagskerfið bara fyrir sig. Leiðinlegt fyrir heiminn og fyrir fólkið en ríka fólkið verður að fá að græða. Þannig er lögmál hins frjálsa markaðar. Nú er skilningurinn hins vegar sá að vandamála fólkið séu útlendingar. Ekki fjármálafólkið sem rænir peningunum þínum og tæknifólkið sem rænir þig lífsviljanum og fjármagnseigendur sem drepa jörðina á meðan þeir maka krókinn. Nei, fólkið sem flytur á milli landa. Það er vandamálið því það vill vinna, éta og sofa á meðan það rembist við að læra nýtt tungumál og sendir börnin sín í skólann.
Útlendingar allsstaðar var yfirskrift Feneyjatvíæringsins 2024 og hún talaði vel inn í verkið. Akomfrah fjallar oft um nýlendusögu Bretlands í verkum sínum enda er hann útlendingur í eigin heimalandi. Hann flutti til Bretlands átta ára gamall eftir valdaránið í Ghana árið 1966 vegna þess að þar var lífi móður hans ógnað. Útlendingar allsstaðar eru kannski tákn ójafnvægisins í mannheiminum. Hvernig ójafnrétti og ójafnvægi ógna lífi mannfólks. En útlendingar eru ekki ógnin, það eru hinir ríku, hinir ráðandi sem ota fólki saman til að athygglin hverfi ekki að því sem þeir gera. Að því sem þeir eru. „Face to face in the bedroom“ – fyrir þá er best að fólkið sofi og heyri ekki í regninu.
Eftir klukkustundar dvöl í skálanum var eins og ég hefði verið í kafi. Í stiganum upp á aðra hæðina tók á móti mér hljóðrás mannfólksins sem berst með hinum ýmsu tækjum. Útvarp, segulband, plötuspilari og tölva eru hávaðasöm tæki sem fólk notar til að móta sína hljóðrás. Heyra í hinu fólkinu. Það eru mörg sem vilja heyrast í tækjum annarra. Syngja lagið sitt, spyrja sitt tónlistargoð spurninga eða segja sína skoðun. Mín rödd hljómar núna í höfðinu á þér þegar þú lest þetta. Að hlusta á verkið var að hlusta á eitthvað sem mér fannst svolítið óþægilegt að heyra. Þægilegra að heyra að fólk með ólíkan uppruna eigi bara að vera heima hjá sér. Þægielgra að heyra að jörðin sé nú stór og hún spjari sig vel. Þægilegra að trúa á að tæknin komi og bjargi því hún geri framfarir. Óþægilegt að velta því fyrir sér hvort strákarnir mínir verði eftir í heimi sem er tölvugerður einmannaleiki og fullur af vatni. Að þeir muni þurfa að kljást við tilfinningar um hatur í garð nágrannanna. Að kannski bíði þeirra kuldi um myrka nótt, stríð og manngert heyrnarleysi. Útvarp, segulband plötuspilari og tölva eru tæki til að hlusta á söguna og læra af henni.