Guðrún Kristjánsdóttir

Í dag er síðasti sýningardagur á Kjarvalsstöðum á yfirlitssýningu Guðrúnar Kristjánsdóttur Leiðir. Ég hef heimsótt sýninguna nokkrum sinnum en fór í dag og hlustaði á leiðsögn hennar um sýninguna. Verkin hennar eru aðallega abstrakt landslag og gaman að heyra hvernig hún leitast við að mála veðrið. Eins og sannur Íslendingur og það er eitthvað mjög íslenskt við verkin hennar. Ég myndi lýsa þeim eins og minningum um fjallshlíðar. Það er miklu meiri fágun yfir veðrinu í verkum Guðrúnar en upplifunin af hinu íslenska veðri sem getur verið mjög subbuleg og harkaleg. Það er eins og hún máli frekar hvernig forvitinn getur skilað okkur fegurð með því að rýna í eitthvað sem er óstýrlátt og hryssingslegt. Hvernig getur asahláka verið áhugaverð og jafnvel falleg? Það sjáum við í landsagsverkum Guðrúnar. 

Mér varð það ljóst að Guðrún er ekki þannig listamaður sem setur sjálfa sig í öndvegi og telur verkin hennar eigi að miðla hennar eigin snilligáfu eða draga athyglina að sköpunarkrafti hennar sjálfrar. Hún notaði orð eins og þráhyggja og forvitni. Listin hennar snýst um listina sjálfa en ekki boðskap eða tákn. Ég kann því vel. 

“Ring the bells that still can ring

Forget your perfect offering

There is a crack in everything 

That’s how the light gets in”

Leonard Cohen, Anthem

Guðrún vísaði í hlutverk sprungurnar við að hleypa ljósinu inn þegar hún talaði um þessa mynd sem ég hafði áður tekið mynd af á símann minn. Bætti svo við að hún hefði verið eitthvað þunglynd þegar hún málaði þetta. Þetta dökka þunga. Sagði að stundum læddist líðanin inn í verkin en sagði svo það mætti túlka þetta á marga vegu. Vildi hún ekki læsa sig inn í verkinu eða læsa verkið inni í sér? Allt er á hreyfingu og allt er breytilegt eins og náttúran hörfar undan veðrinu. 

Það besta við sýninguna var að mínu mati hljóðmyndin sem henni fylgdi. Í öðrum enda sýningarinnar var innsetning sem kallaðist Vatn (2013) og samanstóð af vatni, grágrýti  og ljósi. Við það var tónverk eftir Daníel Bjarnason leikið (með rafhljóðum) á steinahörpu Páls á Húsafelli af Frank Arnink slagverksleikara. Í hinum enda salarins var verkin Veðurlag (2000/2001) sem er olía á hörstriga, vídeó og hljóð sem voru rímur kveðnar af Steindóri Andersen. Hljóðmyndirnar runnu svo saman og mynduðu andrúmsloft um öll verkin. Veðrabreytingar og dropinn að hola steininn á meðan mannsröddin hummar fyrir munni sér á leið eitthvað um landið. 

Next
Next

The Rules of the Sport