The Rules of the Sport
Það heftur vakið eftirtekt mina að undanfarið hef ég skilgreint þá fáu daga sem ég fer hvorki í ræktina né hangi á samfélagsmiðlum sem bestu dagana. Þetta tvennt hefur fyrir einhverja ótrúlega ólukku orðið hornsteinn nútíma lífs, eða ætti ég að segja lífstíls. Með boðum og bönnum hef ég reynt að nýta frelsi mitt til að selja ekki stórum gróðamaskínum sál mina mina með því að taka tímann minn og athygli af internetinu en það er snúnara með ræktina þar sem hún er hornsteinn nýju trúarbragðanna, heilsunnar. Ég get varla tekið það að mér þar sem ég er með meistaragráðu í lýðheilsuvísindum að draga það í efa að líkamsrækt sé það sem hún á að vera samkvæmt nýju kennisetningunni: allra meina bót!
Ég ælta því frekar að skrifa um kafla í bók Adams Gopnik frá árinu 2000. Hún heitir Paris to the Moon og er safn ritgerða um líf hans og fjölskyldu hans í París á áunum 1995 til 2000. Gobnik skrifaði á þessum tíma fyrir Bandaríska tímaritið New Yorker og fjallar um hvernig dálæti hans á París dregur hann til þess að hefja nýtt líf í fjarlægri borg sem er þekkt fyrir að vera eitthvað annað en Ameríka. Frelsisstyttan kom jú til New York frá París en Bandaríkjamenn og Frakkar hafa kannski ekki sömu hugmyndir um frelsið sem styttan á að lýsa upp. Þetta er sem sagt Ameríkani í París.
Í þessum stutta kafla í bókinni fjallar Gobnik af amerísku yfirlæti um leit hans að líkamsræktarstöð í París rétt fyrir aldamótin. Parísarbúar höfðu lítinn áhuga á “amerískri líkamsræktarstöð” eins og þeir kölluðu það. Ég var í menntaskóla á þessum tíma og man eftir því að hafa haft leyfi til að sniðganga þessar stofnanir með öllu. Þvílíkur tími! Pabbi minn er áttatíu og hálfs eins og hann segir sjálfur, og hann hefur aldrei stigið fæti inn í líkamsræktarstöð.
Gobnik kemst þó á snoðir um að opna eigi líkamsræktarstöð þar sem andi hinnar ströngu, ófrávíkjnalegu þjálfunar byggði á heraga eins og í New York og meðlimir gætu heimsótt allt að einu sinni í viku. Djókið er auðvitað að Bandaríkjamenn vilja sinna sínum heraga einu sinni á dag en ekki einu sinni í viku. Gobnik heldur því svo fram að helsti munurinn á daglegu lífi í Bandaríkjunum og Frakkandi sé fjarvera allrar umræðu um líkamsrækt og íþróttakölt (hann talar um cult, ég er ekki að búa það til) í Frakklandi. Og enn og aftur verður París sem himinn á jörð í mínum huga. Eða var það allavega. Ég er nokkuð viss um að New York style líkamsræktarstöðvar séu á hverju strái í
París árið 2026. Kannski ekki allar undir sama einokunarfyrirtækinu eins og á Íslandi. Það er líklega sama hungurmenningin í gangi í París í dag og á Íslandi. Algorytminn fóðrar okkur öll á afbakaðri fargurfærði um hungur og ofþjálfun og kallar það heilsu.
Fyrir mig er kominn tími til að brugga kaffi. Svo neyðist ég til að fara í ræktina.