Kristín Gunnlaugsdóttir

Í gær var Kristín Gunnlaugsdóttir í sófanum hjá Gísla Marteini í sjónvarpsþættinum Vikan. Það er sjaldan sem ég verð svona uppveðruð yfir fólki. Hún Kristín er svo svakalega töff. En hún hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu. Ég fagna því að þessari flottu konu sé telft fram. Ég gróf í kjölfarið það sem ég skrifaði um yfirlitssýningu á verkum hennar á Kjarvalsstöðum í kring um áramótin 2025 og 2026. Textinn er ókláraður og brotakenndur. Það er ýmislegt ósagt. En ætla að láta þetta flakka í dag.  

Frá yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum 2025

Ég er mætt meira á viljanum en getunni. Ég er völt á fótum og nota þessa ferð bæði til að æfa úthald á fótum og jafnvægið. Desember og það verður varla bjart í dag. Það er brjálæðislega gaman að vera hérna. Kannski hefur það áhrif á allan glasan sem ég finn á sýningunni. Ég hef séð mörg þessara verka áður en það er sérlega gaman hvernig þeim er blandað saman en ekki sett í tímaröð eða eftir tækni eða viðfangsefni. Augun Flökta á milli stórra og lítilla flata og skemmta sér. Ég kannast við hvernig Kristín setur kvenlíkaman fram eins og hann sé ekki til sýnis heldur er það frekar athöfnin sem líkaminn er að upplifa sem við sjáum. Það eru ekki pósur sem eiga að heilla augað heldur hreyfingar og tilfinning sem flestar upplifa kannski í einrúmi. Það er mikið af píkum. Málaðar og útsaumaðar. Það er gleði og frelsi í píkunum. Ég var kát að sjá aftur stóra, eldrauða strigaútsaumsverkið sem ég man eftir að hafa spilað fyrir framan í Listasafni Íslands. Sköpunarverk heitir það og er svo dýrðlegt að sjá.

Yfirskrift sýningarinnar var Ósagt. Frekar óspennandi titill sem ég set helst í samhengi við að sýningartexta við myndirnar vantar. Það er allt í lagi til að byrja með, ekkert til að trufla athyglina en síðan langar mig að vita meira og þá er það vesen. En kannski bara góð tilbreyting.

Kristín er fædd árið 1963 á Akureyri. Það vekur strax athygli hvað hún hefur góða tækni og hvernig hún hefur greinilega sótt í gamla tækni og gamla tíma. Hún gekk í klaustur í Róm 1987-1988 og hefur tileinkað sér fagurfærði miðalda og  íkonamálun. Hún gekk í Akademíu hinna fögru lista í Flórens árið 1988. Þá kyntist hún myndhefð bísans. Fór að mála langar draumkenndar fígúrur í landslagi eða tímalausum borgum. Andleg stemming látleysis án tilgerðar en uppfull af táknum. á Ítalíu kyntist hún þeirri miðaldatækni að leggja blaðgull og mála með eggtemperu sem er eggjarauða, vatn og litaduft.

Abstraktverkin eru ekki eins áhrifamikil og þau fígúratífu, hún Kristín hefur nefninlega svo margt að segja að þau fylla hugann meiri fyllingu ef svo má segja. Mörg verkanna eru mjög líkamleg og oft á mjög skemmtilegan hátt þar sem nautnir fá að njóta sín á nútímalegan hátt þó að tæknin sé blaðgull og eggtempera.

Einstæða móðirin er máluð á blaðgull og hangir á svörtum fíltvegg með löngum hárum sem minna á eitthvað gamaldags og smá klúrið. Móðirin er ógreidd og mæðuleg. Aðeins klædd í hælaskó og háa silkisokka. Hún er beskjölduð en samt keik þar sem hún heldur á bónuspoka. Hún er hagsýn og hefur það hlutverk að næra. Hún er að ströggla við að vera hún sjálf. Til móts við einstæðu móðurina er hinni heilögu stillt upp á ljósum vegg. Hún er í samhverfu fjallalandslagi sem táknar jafnvægi og hún er klædd og var ekki að koma úr búðinni. Okkur dettur ekki í hug að hún sé kynvera. Hún horfir út úr myndinni eins og hún sé með allt á hreinu. Mér finnst ég samt sjá að henni drulluleiðist.

 

Bónuskonan var rædd í Vikunni í gær. Skemmtilegt að fá umfjöllun um myndlist í skemmtiþætti í sjónvarpinu.

Next
Next

Flora Yukhnovic - Bacchanalia