Sokkabuxur

Mér þykir þægilegt að vera í sokkabuxum. Sokkabuxur hafa ekki stífan buxnastreng sem herða að vömbinni heldur eru þær mjúkar og hreyfast vel með andardrættinum. Ég myndi aldrei ganga í aðhaldssokkabuxum því það besta við sokkabuxurnar er sveigjanleikinn. Þær eru kannski ekki alltaf hlýjasta flíkin sem hægt er að finna en ég geng samt í sokkabuxum í brjáluðu veðri. Reyndar er eini tíminn sem ekki er hægt að ganga í sokkabuxum sá ef það er of heitt. Það gerir hitann alveg óbærilegann að vera í nælonsokkabuxum. En það gerist afar sjaldan á Íslandi.

            Samkvæmt bók Sofi Thanhauser; Worn: A People´s History of Clothing komu nælonsokkabuxur fyrst á markað árið 1939 í Bandaríkjunum. Nælon hafði verið fundið upp nokkrum árum fyrr og var eitt fyrsta gerviefnið unnið úr olíu sem sett var á markað. Sokkabuxur höfðu áður verið ofnar úr bómull en nælonsokkabuxurnar áttu meira skylt með silkisokkum sem voru þunnir og þrengri. Silki var ekki framleitt í Bandaríkjunum og var mjög dýrt og þannig ekki á færi allra. Þá er það öfugt við nælon ekki teygjanlegt efni og var erfiðara að klæðast silkisokkum.

Otto Dix - La journaliste Sylvia von Harden 1926

 Upp í hugann kemur mynd Otto Dix frá árinu 1926 af blaðakonunni Sylvia von Harden þar sem annar silkisokkur hennar hefur krumpast niður þannig það skín í lærið á henni á myndinni. Þetta átti að vera sjokkerandi því konur áttu auðvitað að gæta að velsæmi sínu áður en þær kveiktu í sígarettu og gæta þess vel að svo klúðurslegt athæfi kæmi aldrei fyrir augu annarra. Krumpaði sokkurinn er ásamt hárgreiðslunni, einglyrninu, sígarettunni, kokteilnum, Weimar-eldspítustokknum og fasinu að henni er drull. Og þess vegna er allt að fara fjandans til. Þessi mynd var í Pompidou og í miklu uppáhaldi hjá mér.

            Nælonsokkabuxur slógu strax í gegn og eftir að hafa verið sýndar á Heimssýningunni í New York árið 1939 með loforðum um að móta fætur kvenna þannig að þeir fullnægji þrám karla seldust upp fjórar milljónir nælonsokkabuxnapara á tveimur dögum í verslunum (department stores) í Bandaríkjunum í maí 1940. Í seinni heimsstyrjöldinni féll nælonsokkabuxnaframleiðsla niður en konur gátu aftur keypt nælonsokkabuxur eftir stríðið þegar þeim var stuggað úr vel borguðu störfunum sem þær unni á meðan á stríðsrekstrinum stóð. Hrundið var af stað miklum áróðri til að hrinda konum úr störfum og skrúfað var fyrir fjármögnun opinberrar barnapössunar. En þær gátu klæðst nælonsokkabuxum og hugsað um þrár karla inni á heimilunum.

Tracey Emin - My Bed 1998

Tracey Emin - My Bed 1998

            Það hefur kannski eitthvað að gera með tenginguna við þrár karla að heilmingur mannkynsins getur ekki klæðst sokkabuxum án þess að verða fyrir heilmiklu aðkasti. Sokkabuxur eru tákn um kvenleika og ekki í boði fyir neinn sem ekki kærir sig um þau vensl. Klámvæðingin sem átti sér stað rétt fyrir og um aldamót hefur þó gert það að verkum að það þykir ekkert sérlega æsandi við sokkabuxur. En kvenlegar eru þær. Hvað sem það nú þýðir. Þegar Tracey Emin ögraði listheiminum með innsetningu sinni My Bed árið 1998, táknuðu sokkabuxurnar á rúminu að þetta var eign konu. Eftir að hafa rýnt í verkið sé ég að það eru líka ljósbláar nærbuxur á rúminu en ég verð að segja að sokkabuxurnar eru sérlega áhrifamiklar. Þær eru skýrara merki um manneskju í rúminu en kuðluðu rúmfötin. Fótleggja lögun þeirra vekur strax upp mynd af konu sem afklæðist. Sokkabuxurnar eru húðlitaðar og kuðlaðar og stemma vel við ringulreiðina í kring um rúmið. Ná vel utan um hugarástand manneksju sem hefur misst tökin á tilverunni. Þær liggja þarna óumhyrtar fyrir allra augum en ekki vel brotnar saman í skúffu. Ég fæ á tilfinninguna að þær séu með lykkjufalli. 

            Ég man ekki eftir lykkjufalli á mínum eigin sokkabuxum í seinni tíð. Þá skemmist viðkvæmt efnið og henda þarf sokkabuxunum. Það átti að vera vandræðalegt að ganga um með lykkjufall á sokkabuxunum. Svona eins og að vera með opna buxnaklauf og konur létu hvor aðra vita af ástandinu með væntumþykju og hvíslandi samstöðu í tóninum: “þú ert með lykkjufall”. Það var nú ekki boðlegt að ganga um eins og að hafa ekki grandskoðað sig í spegli frá toppi til táar áður en haldið er út úr húsi. Það voru svo pönkarar sem rifu göt á sokkabuxur til að ögra þessum áskipuðu venjum að hafa sig almennilega til áður en haldið var út í heiminn.

Húðlitaðar sokkabuxur fóru úr tísku þegar ég varð fullorðin. Ég man síðast eftir að fara verið í húðlituðum sokkabuxum við tónleikafatnað í New York árið 2009. Þá voru átök innan hljóðfæraleikarahópsins um sokkabuxurnar og ég man eftir okkur vinkonunum að kaupa sokkabuxurnar í fríhöfninni á leiðinni út í uppgjöf og okkur fannst þetta alls ekki töff. Ég geng í þykkum og sterkum sokkabuxum en þær er hægt að fá í allskonar litum og munstrum sem gerir það tiltölulega ódýrt að leika sér. Mér hefur verið sagt að ungar stúlkur í dag vilji helst ekki ganga í neinum sokkabuxum. Og það alveg sama þó þær búi upp á Íslandi um vetur og hafi smekk fyrir snípsíðum pilsum. Þær fúlsa því við lituðu sokkabuxunum sem ég kann að meta en fúlsaði við þeim húðlituðu sem þær eldri en ég völdu. Tískan er svo sjaldan einstaklingsbundin þó þannig sé upplifunin af henni. Hún býr í menningunni.

Sarah Lucas -

Sarah Lucas - Oh Soldier! 2005

Verkið Oh! Soldier eftir breska listamanninn Söruh Lucas frá árinu 2005 snýr skemmtilega upp á ímynd hermannsins þar sem nælonsokkabuxur eru paraðar með hermannaklossum og axlaböndum. Verkið hangir viðkvæmnislega á vírherðafré og snýr rækilega upp á viðteknar hugmyndir um hermanninn í virðulegum, karlmannlegum alklæðnaði. Fyrir hverju berst þessi hermaður?

Senga Nengudi R.S.V.P

 Ég man eftir að hafa séð verk Sengu Nengudi úr flokknum R.S.V.P. í MOMA í New York. Sokkabuxur festar við veggina svo það teygist harkalega úr þeim og þær fylltar með sandi. Þetta vakti óhug þar sem líkami myndi ekki þola þvílíka meðferð. Eða var þetta einhverskonar hliðstæða við kvenleikann sem buxurnar tákna? Hve langt hann er frá því mannlega. R.S.V.P. er á frönsku beiðni um að svara. Beiðni um viðbrögð. Líkaminn bregst við lífinu. Það tygist á skinninu sem á að vernda okkur fyrir umheiminum. Það er ekki mikið skjól í sokkabuxum. Ekki í kvenleikanum heldur. Sokkabuxurnar eru húðlitaðar. Kannski var óhugnaðurinn í mínum huga kominn til vegna þess að í sömu ferð var ég skikkuð til að ganga í þessum klæðum. Hef ekki gert það síðan.

Next
Next

Guðrún Kristjánsdóttir