Þegar ég skrifa þetta sit ég fyrir neðan prentverk af olíumálverki eftir Hauk Halldórsson sem ég var að hengja upp. Örlaganornirnar Urður, Verðandi, skuld (1998). Verkið var í eigu fyrrverandi stjúpföður míns Þorsteins Kristinssonar en hann lést í janúar á þessu ári. Hann átti alls konar listaverk í geymslunni og hélt sérstakelga upp á Hauk Halldórsson. Ég veit að það eru mýmargir sem hafa ekki veggpláss fyrir málverkin sín og geyma þau því í geymslu en það er alltaf eitthvað undarlegt við það samt að eitthvað sem á að horfa á komi ekki fyrir augu neinna. Listaverk eiga að sjást. Á þau á að horfa. Ég hugsa til Steina og vona að hann sé ánægður með að við örlaganornirnar horfumst nú í augu.
Það eru örlög margra góðra verka að sitja í söfnum listasafna þar sem ekki er pláss til að sýna þau og þau dúsa í geymslum og bíða þess að falla að einhverri sýningu eða verða fengin að láni til annars safns til sýningar. Gerðarsafn hefur síðasta misserið boðið upp á svokallað Myndlæsi en það eru stundir þar sem fólki gefst kostur á að koma í safnið og sitja saman og horfa á verk sem starfsfólk safnsins hefur valið fyrir hvert tækifæri. Þar er hvert verk sett á trönur í 30 mínútur þar sem fólk situr á stólum og fær að horfa og ræða það sem sést. Þetta er dágóð stund en þetta er fármunalega skemmtilegt. Það er ekki bara það að gefa sér tíma til að horfa heldur er svo skemmtilegt að ræða verkið við hina í hópnum. Heyra mismunandi hugmyndir og sjónarhorn. Oft eru verkin dregin fram í dagsljósið úr safngeymslunni og við fáum að njóta þeirra í smástund.
Eyborg Guðmundsdóttir Les cordes vibrantes (1974)
Síðasta föstudag horfðum við á Les cordes vibrantes (1974) eftir Eyborgu Guðmundsdóttur (1924-1977). Í fyrstu hélt ég að það yrði erfitt að orða hugmyndir og sjá merkingu í þessu verki en það komu svo margar skemmtilegar pælingar upp og verkið gaf endalaust af sér eftir því sem tímanum valt fram. Þetta er kennt við geómetríska abstrakt en mér finnst þetta virkilega tala inn í op-list eða einskonar skynvillustíl. Mér fannst sjónhverfingarnar svolítið erfiðar þar sem víddirnar troða sér fram í skynjunina á milli þess sem heilinn skilur það vel að myndin er frekar flöt. Eða er hún á hreyfingu. Mér fannst þetta alls snúast í hausnum á mér. Svo þegar við fengum að vita titilinn kom enn nýtt sjónarhorn þar sem mér fannst myndin breytast í einhverskonar kúbískt strengjahljóðfæri þar sem sjá má titringinnsem framkallar mismunandi tíðnir.
Það sem stendur þó virkilega í mér eru svokallaðar fríhafnir listaverkabraskara þar sem listaverk í milljónatali dúsa í kössum í myrkvuðum geymslum eftir að hafa verið keypt fyrir fáránlegar fjárhæðir. Ég hef vitað af þessum fyrirbærum lengi en ekki viljað leiða hugann að þvílíku en ég er að horfa á sjónvarpsþætti á RÚV um listaverkabrask þar sem þessar fríhafnir gegna veigamiklu hlutverki. Þættirnir fjalla um franska listaverkabraskarann og fríhafnarfrömuðinn Yves Bouvier og rússneska olígarkann Dimitri Rybolovlev. Þeir etja kappi um hvor þeirra nær að skrumskæla mennskuna meira á meðan þeir traðka sjálfa fegurðina niður í peningasvaðið með sér. Þeir eru í stuttu máli í síðkapítalískri keppni um hver nær að stela meiru. Stórþjófar stjórna heiminum með viðbjóðslegum peningum sem þeir stela og stela og stela og múta þangað til einhver dettur á skíðum. Eða eitthvað svoleiðis. Ömurlegt í boði auðæfa. Meiri peninga minna líf. Sá ógeðslegasti lifir af. Rybolovlev komst í álnir með því að ræna rússneskan almenning og Bouvier blekkir hann til að kaupa málverk fyrir miklu meira en hann keypti þau á. Svo saka þeir hvor annan um sviksemi. Þættirnir sem heita Listin að svíkja upp á íslensku fjalla um hatrama baráttu þeirra. Báðir eru drulluhalar og það er erfitt að fylgja listaverkunum eftir.
Ég get ekki hætt að hugsa um listaverkin. Í hugum uppboðshúsanna snúast listaverkin um það að búa til peninga. Virði þeirra er afstætt og aðeins mælt í því hve mikla peninga fæst fyrir þau. Í hugum listaverkasafnara hefur listin aðeins það hlutverk að vera skattaskjól. Eða það er hægt að monta sig af því að hafa borgað svo og svo mikið fyrir verkið sem dúsir svo í einhverri geymslu af því að mannfjandinn tímir ekki að borga skatta af því. Listaverk eru til þess að færa til fjármuni og svíkja undan skatti. Hvernig í ósköpunum varð heimurinn svona ógeðslegur að leyfa peningum að taka yfir listina? Þarna eru viðbjóðslegustu eintökun af manneskjum að sýsla með fegurstu listaverkin. Ég horfi í örvæntingu á örlaganornirnar sem eiga að hafa þessi ömurlegu örlög í hendi sér.
Þarna eru viðbjóðslegustu eintökun af manneskjum að sísla með fegurstu listaverkin. Ég horfi í örvæntingu á örlaganornirnar sem eiga að hafa þessi ömurlegu örlög í hendi sér. Til að bæta gráu ofan á svart þá er eitt lykilverkið í þessum myrkasirkusi eftir Leonardo Da Vinci en öll verk eftir hann ættu að vera á söfnum. Verkið heitir Salvator Mundi eða bjargvættur heimsins. Bjargvættur heimsins hefur þá væntanlega farið ásamt öllu listaverkasafni Rybolovlev frá Sviss til Singapúr. Úr einni fríhöfn til annarar og setið þar bak við lás án ásjár. Mér finnst það ekki alveg ljóst af þáttunum hvar listaverkin eru. Því er haldið fram að þau séu í geymslu en svo er vístað til þess að á þau sé horft nokkrum sinnum. Eru brögð í tafli þar? Eigum við bara að halda að þau séu í fríhöfninni? Bouvier á að hafa rakað saman listaverkum í fallegasta safn listaverka í einkaeigu í heiminum og við sjáum til að mynda bók um listaverkasafnið í þáttunum. En ef listaverkin voru lokuð inni í kössum í Singapúr, hvers vegna fer þá Rybolovlev að selja úr safninu vegna þess að þolir ekki að hafa verkin fyrir augum sem hann telur að hann hafi borgað of hátt verð fyrir? Mig minnir að það sé orðað þannig. Kannski er einhver skýring á þessu, er hann með eftirprentanir heima hjá sér? Mér finnst þetta ekki alveg koma heim og saman. Það verulega írónískt svo ekki sé meira sagt að Bjargvættur heimsins hafi verið í eigu rússnesks olígarka. Svo var hann seldur á 400 milljónir dollara á uppboði árið 2017 til prins í Sádi Arabíu. Um tíma hékk hann í snekkju prinsins en er nú víst í leynilegri geymslu.
Leonardo Da Vinci - Salvator Mundi
Ég hugsa til Steina sem var ekki þjófur og silgdi ekki um heiminn á snekkju heldur á flutningaskipi. Hann safnaði listaverkum vegna þessa að hann hafði unun af þeim. Ég sé hann fyrir mér með útskurðarhníf í hönd að skera út rammann utan um myndina sem hann gaf mér í síðasta skipti sem ég heimsótti hann. Ég velti því fyrir mér hvort hann sé síðasti maðurinn sem hriðir upp fugla til að láta stoppa þá upp. Mig svíður enn að hafa ekki haft á orði hvað hann var með flotta húfu þegar hann kom að heimsækja mig á spítalann. Ég hugsa um hann í essinu sínu í Sólveri. Ég brýni fyrir örlaganornunum að gyrða sig í brók.